A review by birtabkjerulf
The Crane Wife by CJ Hauser

4.0

Bókin er safn af persónulegum ritgerðum, sem allar snúast að ástinni eða sjálfsáliti - eða bæði í einu. Það hitta ekki allar ritgerðirnar í mark, sumar eru langdregnar eða fullar af endurtekningum. Þær ritgerðir sem hitta í mark gera það svo sannarlega, skera mann á hol og skilja eftir sár. Mjög falleg, með betri bókum sem ég hef lesið sem passar inn í þessa sjálfshjálpar-hugleiðinga-dagbókar tegund bókmennta sem ég er að verða meira og meira hrifin af.