A review by birtabkjerulf
The Lonely City: Adventures in the Art of Being Alone by Olivia Laing

5.0

Fáar bækur hafa snert mig jafn djúpt og þessi hefur gert síðastliðna þrjá mánuði. Hún var svo stórkostlega nærgætin, ljóðræn og falleg að stundum var einfaldlega erfitt að lesa hana. Ég grét af söknuði þegar ég kláraði bókina, sem ég myndi segja að eru viðeigandi endalok á lestrinum miðað við innihald hennar.