A review by oligneisti
The Armageddon Rag by George R.R. Martin

4.0

Rithöfundur berst við drauga róttækrar fortíðar og vonbrigði samtímans. Smá gúggl leiddi í ljós að ég væri ekki sá eini sem sá líkindin við The Big Chill sem kom út á næstum sama tíma. Tíðarandinn skín í gegn. En auðvitað gerólíkar bækur enda er þessi í raun fantasía.

Þetta var mjög spes tími til að lesa bókina, tíu ár frá Búsáhaldabyltingunni og ég upplifi vissulega sömu tilfinningu og sögumaðurinn að þetta hafi allt verið unnið fyrir gýg.