A review by birtabkjerulf
The Testaments by Margaret Atwood

4.0

3,5 stjörnur. Ég byrja á því að segja að það er eiginlega ekki hægt að bera þessa bók saman við upprunalegu bókina - en ég ætla samt að gera það. Hin var svo rosalega áhrifarík og hugulsöm - mjög lítil saga en stór hugarheimur, margar djúpar, oft sársaukafullar, pælingar og allt það mikilvægasta í smáatriðunum. Þessi saga er í raun miklu stærri og víðameiri og fókusar miklu meira á sögulínunar þrjár, framvindu þeirra og fléttu. Mér fannst hún dáldið slöpp á köflum þegar kom að persónusköpun en ég kláraði hana á innan við viku svo hún hélt mér sannarlega við efnið, fínasta dystópíubók í rauninni, mæli alveg með (mikilvægt að lesa hina fyrst samt).