katrinlea's profile picture

katrinlea 's review for:

Fjarvera þín er myrkur by Jón Kalman Stefánsson
5.0
emotional funny inspiring reflective sad slow-paced
Plot or Character Driven: Character
Strong character development: Yes
Loveable characters: No
Diverse cast of characters: Yes
Flaws of characters a main focus: Yes

„minning þín er ljós, fjarveran myrkur.“ ég hef svo margt að segja um þessa bók sem ég veit ekki hvort ég geti komið í orð en ég ætla að reyna. ég tók hana á bókasafninu einungis vegna þess að einhver var að skila henni og mér fannst titillinn og kápan svo falleg, vissi ekkert meira, dæmdi bókina út frá kápunni, bókstaflega. og vel valið katrín! 

þetta er fyrsta jón kalman bókin sem ég les, þó ég hafi alltaf verið á leiðinni með hann, og ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum. textinn er svo fallegur og vel skrifaður, maður lifir sig algjörlega inn í hann. bókin flakkar á milli tíma og persóna, allir eru einhvernveginn tengdir og sögumaðurinn veit ekki einu sinni hver hann er. ástarsögurnar eru margar og sterkar, að sjálfsögðu rómantískar en ekki síður aðrar tegundir ástar sem oft eru vanmetnar. bókin fjallar einfaldlega um líf fólks, eins hversdagslegt og það verður, og maður kynnist persónunum djúpt. ég á erfitt með að sleppa þeim og ströndunum alveg, mun örugglega lesa þessa bók aftur. dauðinn og vangaveltur um hann eru stór í frásögninni, en ekki síður lífið sjálft sem er jú forveri hans. ein besta bók sem ég hef lesið, risastórt! nokkrar eftirlætislínur sem ég punktaði niður:

„að hugsa sér að heiminum hafi dottið í hug að vera til án þín.“

„lífið er hreyfing, við köllum það dauða þegar það nemur staðar.“

„það verður merkileg reynsla fyrir mig að vera dáin! ég hef aldrei prófað það áður.“

„ég hef aldrei getað hugsað mér lífið án þín, en nú er ég dáin. hvernig get ég dáið án þín? hvernig get ég ratað um myrkrið án þín?“

„neruda orti aldrei um grátandi pylsubrauð.“

„að vera alein og án þín, það er dauði.“

„það deyja allir á endanum, bæði áðnamaðkar og manneskjur.“

„ég held að maður sé óþarflega gjarn á að sannfæra sig um það, að seinna geti maður… að seinna verði hægt að… en afi, stundum kemur þetta seinna aldrei. og fyrir það þarf maður að greiða allt sitt líf.“